
Fyrsti áfangi hafinn
Miðbær í mótun
Miðbær Kópavogs gengur í endurnýjun lífdaga og endurheimtir sess sinn sem hjarta bæjarins okkar.
Um uppbygginguna
Endurnýjun miðbæjarins er langtímaverkefni í stöðugri mótun. Eldri byggð sem ekki svarar lengur kröfum nútímans víkur fyrir mannlífi og mannvænu umhverfi. Við byggjum á því sem fyrir er; fólki, menningu, þjónustu og sögulegu hlutverki miðbæjarins. Hér getur þú kynnt þér skipulagsferlið og allt sem viðkemur miðbæ í mótun, fengið upplýsingar um framkvæmdir á framkvæmdatíma og horft á streymi frá upplýsingafundum.
0
0
Fjölbreyttar íbúðir
Íbúðir af ólíkum stærðum og gerðum sem styðja við fjölbreytt og lifandi bæjarumhverfi.
0
0
Ný bílastæði
Ný og endurskipulögð bílastæði sem bæta aðgengi fyrir íbúa, gesti og starfsemi á svæðinu.
0m²
0m²
Verslunarhúsnæði
Rými fyrir verslun, þjónustu og daglegt líf sem styrkir götumynd og mannlíf á jarðhæðum.
0m²
0m²
Ný torg og almenningsrými
Torg, gönguleiðir og opin svæði sem skapa meira mannlíf, betri tengingar og notalegra borgarrými.
Áfangar
Verkefnin í nýja miðbænum

Fannborg

Traðarreitur

Hamraborg
2017
2020
2021
2025
2025
2026
2026
2030
Algengar spurningar
Hvað felst í verkefninu Nýr miðbær Kópavogs?
Verkefnið nær yfir endurnýjun og uppbyggingu í miðbæ og vesturbæ Kópavogs. Markmiðið er að skapa lifandi og mannvænt bæjarumhverfi þar sem íbúðir, þjónusta, menning og opin rými mynda heild.
Hvenær hefjast framkvæmdir og hvenær lýkur þeim?
Fyrsti áfangi framkvæmda hófst árið 2025. Uppbyggingin fer fram í nokkrum áföngum til ársins 2030, en framvinda getur verið mismunandi milli svæða.
Hvaða svæði eru hluti af verkefninu?
Helstu svæði eru Hamraborg, Fannborg, Traðareitur og nærliggjandi svæði við Fossvoginn. Þessi svæði tengjast saman með nýjum gönguleiðum, grænum svæðum og endurbættri þjónustu.
Hvernig verður miðbærinn eftir breytingar?
Miðbærinn verður aðgengilegri, grænni og fjölbreyttari. Nýjar íbúðir, verslun, menningarrými og torg verða til í hjarta Kópavogs, með áherslu á sjálfbærni og vistvænar samgöngur.
Hvernig geta íbúar fylgst með framvindu verkefnisins?
Allar helstu fréttir, kynningar og fundir verða birtar hér á síðunni undir „Framvinda“ og „Helstu gögn“. Þar má einnig finna upplýsingar um kynningarfundi og skipulagsbreytingar.
Hver ber ábyrgð á verkefninu?
Uppbyggingin í nýjum miðbæ er í höndum tveggja einkaaðila, Árkórs og Jáverks, sem bera ábyrgð á verkefninu og framkvæmdum á svæðinu. Kópavogsbær kemur að ferlinu í hlutverki sveitarfélags, með ábyrgð á skipulagi, leyfisveitingum og samhæfingu upplýsinga gagnvart íbúum og öðrum hagaðilum. Starfræktur er samskiptahópur með fulltrúum uppbyggingaraðila og Kópavogsbæjar, sem hefur hlutverk að tryggja samræmi, heildarsýn og gott upplýsingaflæði á framkvæmdatíma.
Mun uppbyggingin hafa áhrif á umferð og aðgengi?
Já, tímabundnar lokanir og breytingar á umferð geta átt sér stað á meðan framkvæmdir standa yfir. Allar breytingar verða kynntar með góðum fyrirvara á heimasíðunni og í fjölmiðlum bæjarins. Aðgengi neyðarbíla verður tryggt allan framkvæmdatímann. Verkfræðistofan Örugg fer með aðgengismál svæðisins og verða þau kynnt hvert fyrir sig á hverju stigi framkvæmdanna.
Hvenær verður sprengt?
Sprengingar hefjast þegar búið er að rífa plötuna yfir bílakjallaranum. Áætlað er að það hefjist í byrjun sumars 2026, þegar leyfi hefur verið gefið út. Þær sprengingar eru áætlaðar að taki um 4 mánuði, eftir það verður hlé. Sprengingar hefjast að nýju þegar jarðvinna hefst á byggingarreit Fannborgar og Traðarreits. Sitthvor verktaki er fyrir þessa tvo reiti en þeir hafa verið beðnir um að samræma þessa vinnu svo að raskið taki sem stystan tíma.
Hafa samband
Hefurðu spurningar um uppbyggingu í miðbæ Kópavogs?
Verkefnisteymið hjá Kópavogsbæ veitir nánari upplýsingar um framvindu, áætlanir og samráð.
Helstu gögn
Aðgengileg skjöl og fundargögn
Hér má finna helstu skjöl tengd uppbyggingu í miðbæ Kópavogs — skipulag, framkvæmdir og kynningarefni sem snerta þróun svæðisins.
Skipulagsferlið
Skipulagsferlið á uppbyggingu reitanna hefur átt sér margra ára aðdraganda.
Upplýsingafundir
Hér verða allir upplýsingafundir er varða miðbæ í mótun aðgengilegir. Upplýsingafundir verða haldnir við hvert stig framkvæmdaferlisins og auglýstir með góðum fyrirvara.
Íbúasamráð og upplýsingagjöf
Samantekt á upplýsingagjöf og íbúasamráði sem átt hefur sér stað á öllum stigum uppbyggingar miðbæjarins.















