Framvinda

Efni fjarlægt. Engar sprengingar fyrr en eftir 20. ágúst

Í þessari viku mun verktaki rífa bílastæðaplötu á Fannborgarreitnum, fjarlægja efni sem búið er að rífa og undirbúa reitinn fyrir jarðvinnu. Í þessu felst að vörubílar fara með flokkað efni til förgunar; járn, steypu og þess háttar. Þá má gera ráð fyrir aukinni umferð vörubíla yfir brúna við Digranesveg 1 og niður á Hafnarfjarðarveg.

Þegar þeirri vinnu er lokið, hefst jarðvinna. Kópavogsbær er ekki búinn að gefa út leyfi fyrir jarðvinnunni, en þegar það leyfi berst er byrjað á að fjarlægja jarðveg ofan af klöpp. Sú vinna, sem hefst að líkindum í byrjun ágúst, felur einnig í sér umferð vörubíla um brúna og niður á Hafnarfjarðarveg.

Engar sprengingar verða fyrr en eftir 20. ágúst. Líkt og fram kom á íbúafundi sem haldinn var í lok júní er gert ráð fyrir að sprengt verði fjórum til sex sinnum á dag og flautað verður í mínútu áður en sprengt er. Titringsmælar verða settir upp á nálægustu byggingar og niðurstöður mælinga afhentar Kópavogsbæ. Hámarks leyfilegur bylgjuhraði er 15 mm/sek og tíðni 10 Hz. Eingöngu er sprengt frá kl 8-18 virka daga og mögulegt er að unnið verði stöku laugardag.

Gert er ráð fyrir að þessi hluti jarðvinnu og sprenginga standi fram í nóvember.

Seinni hluti jarðvinnu og sprenginga á Fannborgarreitnum hefst svo ekki fyrr en eftir um það bil ár, sumarið 2027. Ef allt gengur eftir ætti þeirri vinnu að vera lokið fyrir jól 2027. Taka ber fram að þetta eru áætlanir sem geta breyst.

Upplýsingar verða settar inn hér og á Fannborg.is eftir því sem við á.

Mannverk er verktakinn sem sér um Fannborgarreitinn.

Annað verktakafyrirtæki sér um Traðarreit vestari, Jáverk, og er vinna þar á annarri tímalínu. Sérstakur upplýsingafundur verður haldinn hvað varðar Traðarreit vestari síðar á árinu og upplýsingar settar hér inn hvað hann varðar.