Framvinda

Niðurrifi á Fannborg 2 lokið og næstu skref

Framkvæmdir í miðbæ Kópavogs halda áfram. Hér að neðan er upptalning á því sem hefur gerst undanfarið og því sem er á dagskrá.

 

  • Búið er að rífa húsið að Fannborg 2. Nú er verið að mylja sökkla og flokka úrgangsefni.

  • Að lokinni flokkun og brottakstri efnis verður fyllt upp í grunninn fyrir bílastæði, eins og gert er ráð fyrir í framkvæmdafasa 2. Gert er ráð fyrir að það bílastæði verði tilbúið í næstu viku.

  • Verið er að opna stæðaröð á efra bílastæðinu, eins og sjá má á meðfylgjandi teikningu. Gert er ráð fyrir að það klárist fyrir lok dagsins í dag, miðvikudaginn 18. mars 2026.

  • Einnig verður lokunarsvæðið á neðra plani minnkað og fleiri bílastæði opnuð þar.

  • Til að minnka rykdreifingu hefur verktaki notast við háþrýstivatnsúðara sem mynda mistur yfir brotsvæði og takmarkar ryk sem annars færi yfir nálæg hús og bifreiðar.

  • Búið er að sækja um niðurrifsleyfi fyrir Fannborg 4 og 6 og má búast við að þau leyfi verði gefin út í næstu viku. Þegar leyfin eru komin verður ráðist í niðurrif á þeim húsum.

  • Öll viðbótarstæði eiga að vera tilbúin í næstu viku.

Framkvæmdasvæðið - Sjá má bílastæðin á þessari teikningu. Framkvæmdasvæðið er innan rauðu línunnar.

Blásarar: Á þessum þremur myndum má sjá háþrýstivatnsúðara sem blása mistri yfir brotsvæðið og takmarka þannig ryk sem annars hefði fallið á nálæg hús og bifreiðar. Þannig takmarkar verktakinn óþægindi fyrir nágranna framkvæmdasvæðisins.