Framvinda

Hreinsun og ástandsskoðun á Fannborg 2, 4 og 6

Verktaki hefur lokið fyrsta áfanga hreinsunarvinnu inni í húsunum við Fannborg 2, 4 og 6.

Núllti (0.) fasi fólst í hreinsun og ástandsskoðun. Hreinsun er að ljúka úr húsum í Fannborg 2, 4 og 6. Ástandsskoðanir vegna framkvæmdanna eru í fullum gangi og er áætlað að þær standi fram í febrúar 2026. Verkfræðistofan VSÓ sér um ástandsskoðanirnar, og hefur samband við íbúa og húsfélög til að finna hentugar dagsetningar fyrir skoðanir. Tímasetningar eru ákveðnar í nánu samráði við íbúa. Haft hefur verið samband við formenn húsfélaganna og þeim falið að miðla upplýsingum áfram til íbúa. Í minni húsum var haft beint samband við íbúana sjálfa. Íbúar þurfa að vera viðstaddir þegar ástandsskoðun fer fram. Allar upplýsingar sem þar koma fram eru meðhöndlaðar sem trúnaðargögn.

Bent er á upplýsingafund sem haldinn var 18. nóvember 2025, þar sem farið var yfir stöðu mála.