Framvinda

Kæru vegna niðurrifs á Fannborg 2 vísað frá

Í byrjun febrúar lagði húsfélag Hamraborgar 10 fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, þar sem kærð var ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar frá 30. janúar 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir niðurrifi mannvirkis á lóð Fannborgar 2.

Á fundi nefndarinnar síðastliðinn föstudag, 20. febrúar 2026, var kærunni vísað frá með úrskurði.

Lesa má úrskurðinn hér:
UUA2602010 Fannborg - Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála