Framvinda
Niðurrif á Traðarreit vestari að hefjast

Verktakinn Jáverk hefur fengið leyfi Kópavogsbæjar til að hefja niðurrif á Traðarreit vestari. Á næstu dögum verða húsin á reitnum rifin. Efni verður síðan flokkað og flutt burt.
Rétt er að taka fram að úttektir á húsunum vegna asbestmengunar hafa verið gerðar og fundust engin merki um slíka mengun, og að engar sprengingar hefjast á Traðarreit vestari að svo stöddu.