Framvinda
Óleyfisaðgerð við Fannborg 2 stöðvuð af byggingarfulltrúa
Þann 16. janúar 2026, áður en leyfi var gefið út fyrir niðurrifi utanhúss, réðst Árkór ehf. í afmarkað niðurrif á þakskyggni utan á Fannborg 2 til að koma sorpgámi sem næst húsinu. Þetta var gert til að losa efni úr efri hæðum hússins beint í gám, og auðvelda þar með efnisflutninga og stytta heildartíma verksins. Niðurrifið var þó stöðvað af byggingafulltrúa samdægurs þar sem tilskilin leyfi til niðurrifs höfðu ekki verið veitt. Forsvarsmenn Árkórs ehf. sendu frá sér yfirlýsingu í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum þar sem segir að ekki hafi staðið til að rífa Fannborg 2 án leyfis. Engin vinna var hafin við niðurrif á húsinu enda höfðu tilskilin leyfi til þess ekki verið veitt. Húsið er í eigu fyrirtækisins og stendur til að íbúðarhús verði byggð á þessari lóð. Árkór baðst velvirðingar á þessu frumhlaupi og farið var yfir verklag og samskipti við verktaka til að tryggja að slíkt gerist ekki aftur.
Nú hefur niðurrifsleyfið verið gefið út og má þá hefjast handa við að rífa húsið.

Myndin sýnir til vinstri Fannborg 2 þar sem búið var að rífa part úr þakskyggni byggingarinnar. Á myndinni eru girðingar sem afmarka svæðið og innan þeirra er rauð grafa sem stendur við Fannborg 2.