Framvinda
Verkinu í Fannborg miðar áfram
Vinna á lóðum Fannborgar 2, 4 og 6 heldur áfram. Verktakinn er að rífa og mylja botnplötu og sökkul á Fannborg 2. Búið er að fjarlægja nær allan úrgang frá Fannborg 6.
Næst á dagskrá er að jafna og þjappa malarbílastæði og færa framkvæmdagirðingu.
Gert er ráð fyrir að innan tíðar verði hægt að hefja framkvæmdir vegna aðgengis að Gjábakkahúsinu.
Umræða hefur skapast um mögulegt asbest á svæðinu. Það rétta er að ekkert asbest er að finna í byggingarúrgangi húsanna sem stóðu að Fannborg 2, 4 og 6. Verktakinn fékk fyrirtækið Skimu ehf. til að skoða og rannsaka hvort asbest hafi verið í Fannborg 2. Hús 4 og 6 voru byggð eftir að asbest var tekið af markaði, en Skima skoðaði þau hús einnig. Niðurstaðan var að ekkert asbest var að finna í húsunum.
Meðfylgjandi er skýrsla Skimu sem send var Heilbrigðiseftirliti Kópavogs.
31102025 Fannborg – Asbest: Sýnataka og greining