Framvinda

Breytt aðkoma að framkvæmdasvæðinu í miðbæ Kópavogs

Vinnusvæðateikning fyrir Traðarreit hefur verið samþykkt. Af því tilefni taka gildi breytingar á aðkomu að framkvæmdasvæðinu.

Markmiðið er að tryggja öryggi á svæðinu og skapa svigrúm fyrir áframhaldandi framkvæmdir.


Nýjar merkingar á svæðinu

Mikilvægt er að hafa í huga að framkvæmdin er umfangsmikil og að aðkoma að svæðinu mun þróast og breytast samhliða framvindu hennar. Leitast verður við að halda aðgengi að heimilum, fyrirtækjum og þjónustu eins góðu og mögulegt er á hverjum tíma.


Engar varanlegar girðingar eða jarðvinna fyrr en byggingarleyfi liggur fyrir

Ekki verður hafist handa við uppsetningu fastra varanlegra girðinga á svæðinu fyrr en fyrsta byggingarleyfi verkefnisins hefur verið gefið út. Um er að ræða byggingarleyfi fyrir fyrsta matshlutann, sem er kjallari framkvæmdarinnar.


Lagnavinna hefst í október

Á meðan undirbúningur stendur yfir er gert ráð fyrir að hefja lagnavinnu í suðvesturhorni svæðisins í október-nóvember. Sú vinna er ekki byggingarleyfisskyld og verður unnin í samráði við Vatnsveitu Kópavogs og Veitur.