Framvinda
Fannborgarreitur: Jarðvinna hafin og undirbúningur fyrir sprengingar í gangi
Framkvæmdum á Fannborgarreit miðar áfram og er jarðvinna er hafin á svæðinu.
Verktaki vinnur nú að því að fjarlægja lausan jarðveg ofan af klöpp auk þess að færa lagnir Kópavogsbæjar út fyrir fyrirhugaðan byggingarreit. Gert er ráð fyrir að mokstur jarðvegs taki um þrjár til fjórar vikur en lagnafærslur um fimm til átta vikur.
Að jarðvinnu lokinni má gera ráð fyrir að sprengingar hefjist, að óbreyttu eftir um fjórar vikur.
Áður en sprengingar hefjast verða titringsmælar settir upp á nærliggjandi byggingum til að fylgjast með áhrifum framkvæmdanna. Sprengingarnar verða í fyrstu framkvæmdar með varfærnum hætti á meðan sérfræðingar meta eiginleika klapparinnar og skilgreina hentugustu framkvæmdaraðferðir.
Samkvæmt verklýsingu má bylgjuhraði vegna sprenginga ekki fara yfir 15 mm/sekúndu og verður fylgst náið með því að þær kröfur séu uppfylltar.
Íbúar og aðrir sem kunna að verða fyrir áhrifum af framkvæmdunum munu fá sérstaka tilkynningu um sprengingarnar með um það bil viku fyrirvara áður en þær hefjast.
Kópavogsbær mun áfram upplýsa íbúa um framvindu verkefnisins eftir því sem framkvæmdum vindur fram.
Meðfylgjandi mynd er af reglugerðinni sem um ræðir, litaðir kassar frá Mannverk.
Sjá jafnframt á vefsíðu verktakans Mannverk, www.fannborg.is.
