Framvinda

Fleygun og sprengingar á Fannborgarreit

Vegna framkvæmda á Fannborgarreit þarf að fleyga klöpp í stuttan tíma í senn. Fleygun fer fram með gröfu sem er aðallega notuð við gröft á svæðinu. Ekki er alltaf hægt að sjá fyrir hvenær þörf verður á fleygun, en búast má við henni öðru hvoru næstu vikurnar.

Fleygun fer fram í stuttum lotum á milli kl. 7:30 og 18:00 á virkum dögum. Vinnan er innan þeirra marka sem gilda um sérlega háværar framkvæmdir.

Áður en mokstur og borun fyrir sprengingum getur hafist þarf að ljúka færslu og tengingu lagna á framkvæmdasvæðinu. Unnið verður við tengingu frárennslis í þessari viku en gert er ráð fyrir að rafmagnsstrengir og ljósleiðari verði tengdir í næstu viku. Að því loknu getur mokstur á lausum jarðvegi og borun fyrir sprengingum hafist.

Sprengingar geta því hafist í fyrsta lagi eftir um þrjár vikur. Gert er ráð fyrir að þær standi yfir í þrjá til fjóra mánuði í þessum framkvæmdarfasa. Nánari upplýsingar um tímasetningar verða birtar þegar þær liggja fyrir.