Framvinda

Framkvæmdir halda áfram á Fannborgarreitnum

Framkvæmdir á Fannborgarreitnum halda áfram en nokkrar tafir hafa orðið á niðurrifi. Nú stendur yfir brot á botnplötu og sökklum. Gert er ráð fyrir að fleygun ljúki um 20. ágúst og að flokkun og brottakstri efnis verði lokið um 26. ágúst. Þá verður niðurrifinu á Fannborgarreitnum formlega lokið. Með lokum fleygunarinnar mun jafnframt ljúka þeim hávaða sem fylgt hefur þeim verkþætti.

Um næstu mánaðamót hefst jarðvinna á Fannborgarreitnum með mokstri á jarðvegi ofan af klöppinni. Sá áfangi er áætlaður til þriggja til fjögurra vikna. Að honum loknum hefjast sprengingar á svæðinu.

Samhliða jarðvinnu verður unnið að færslu núverandi lagna út fyrir byggingareitinn.