Framvinda
Framkvæmdir á Fannborgarreit halda áfram
Framkvæmdum á Fannborgarreit miðar áfram. Unnið er að því að ljúka færslu og tengingu lagna og er sú vinna langt komin. Jafnframt er unnið að því að fjarlægja jarðveg ofan af klöpp. Boranir hefjast í næstu viku og samkvæmt núverandi áætlun er gert ráð fyrir að sprengingar hefjist um 19. nóvember.
Girðing framkvæmdasvæðisins verður færð lengra til norðurs 12. nóvember. Við það lokast bílastæðin við Hamraborg 10.
Olís mun fjarlægja tanka sem eru nálægt Hamraborg 10 en endanleg dagsetning þeirrar vinnu liggur ekki fyrir. Þegar tankarnir hafa verið fjarlægðir er mögulegt að færa bílastæðin nær húsinu og ef af þeirri framkvæmd verður, er hægt að bæta um það bil þremur stæðum. Þá yrði stæði fyrir fatlað fólk fært þannig að það verði í hinum endanum í bílastæðaröðinni. Kópavogsbær mun kynna þessa útfærslu stæðanna sérstaklega fyrir hagaðilum í Hamraborg 10 áður en af breytingum á stæðunum verður.
Gönguleið um svæðið kann einnig að lokast á meðan tankarnir eru fjarlægðir.
