Framvinda
Jarðvinna á Fannborgarreit

Um mánaðamótin ágúst/september mun jarðvinna hefjast við Fannborgarreit.
Fyrstu vikuna verður unnið við að moka jarðvegi ofan af klöpp. Sú vinna mun taka þrjár til fjórar vikur. Samhliða mokstri verður unnið við færslu núverandi lagna (frárennsli, neysluvatn, og rafmagnsstrengir) út fyrir lóð.
Eftir mokstur á jarðvegi munu sprengingar hefjast eins og fram hefur komið á upplýsingafundi um jarðvinnu.
Áður en sprengingar hefjast mun verktakinn Mannverk setja upp titringsmæla á næstu byggingum. Verktakinn mun jafnframt skila gögnum um sprengingar til Kópavogsbæjar daglega til upplýsingar.
Stefnt er að fjórum til sex sprengingum á dag. Í upphafi verða þó færri sprengingar. Í hvert sinn verður flautað í mínútu áður en sprengt er, til viðvörunar.