Framvinda

Olíutankar við Hamraborg 12 verða fjarlægðir

Tveir niðurgrafnir olíutankar í bílakjallara við Hamraborg 12 eru tómir og lofttegundir hafa verið fjarlægðar úr þeim. Tankarnir bíða þess að verða fjarlægðir.

Bensínstöðin á staðnum er sjálfsafgreiðslustöðin ÓB Hamraborg. Hún er í eigu Olís og vinnur Olís að því að fá leyfi til að fjarlægja tankana.