Framvinda

Upplýsingafundur vegna framkvæmda á Traðarreit vestari

Jarðvinna á Traðarreit vestari hefst á næstunni. Af því tilefni býður Kópavogsbær íbúum til upplýsingafundar þriðjudaginn 17. nóvember kl. 16:00 í matsal Kópavogsskóla, Digranesvegi 35 (áður 15).

Á fundinum verður farið yfir fyrirhugaðar framkvæmdir, framvindu verksins og næstu skref.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í streymi á vef Kópavogsbæjar.

Upplýsingar og fréttir um uppbyggingu í miðbæ Kópavogs má jafnframt finna á midbaer.kopavogur.is.