Framvinda

Nýjustu tilkynningar og gögn

Út­keyrslu­ramp­ur úr bíla­kjall­ara Hamra­borgar við Valla­tröð lok­ast tíma­bund­ið vegna fram­kvæmda

Útkeyrslurampur úr bílakjallara Hamraborgar út á Neðstutröð lokast tímabundið frá 29. júlí til um það bil 15. ágúst vegna breytinga...

Niðurrif á Traðarreit vestari að hefjast

Á næstu dögum verða húsin á Traðarreit vestari rifin. Efni verður síðan flokkað og flutt burt.

Efni fjarlægt. Engar sprengingar fyrr en eftir 20. ágúst

Verktaki fjarlægir efni sem búið er að rífa. Engar sprengingar fyrr en eftir 20. ágúst.

Lokun bílastæðaplötu í Fannborg

Áætlað er að bílastæðaplötunni í Fannborg verði lokað þann 16. júlí. Eigendur eru beðnir um að fjarlægja bíla sína fyrir þann tíma, svo ekki þurfi að láta fjarlægja þá. Platan verður rifin í framhaldi af lokuninni.

Lokun á innkeyrslu á bílaplan við Hamraborg 8-10 og Fannborg

Vegna endurnýjunar á hitaveitulögnum þarf að loka innkeyrslu á bílaplan við Hamraborg  8-10 og Fannborg. Innkeyrsla inn á bílaplanið um hringtorg verður enn opin og einnig er inn/útakstur við bensínstöð ÓB Hamraborg 12 og um Hrímborg.  Lokunin stendur frá þriðjudagsmorgni 14. júlí og út miðvikudaginn 15.júlí.

Lokun bílastæða undir bílastæðaplötunni í Fannborg

Til að undirbúa fyrirhugað niðurrif bílastæðaplötunnar í næstu viku verður lokað fyrir bílastæði undir plötunni frá og með föstudeginum 10. júlí. Þetta er gert til að tryggja að bílar lokist ekki inni þegar niðurrif hefst.

Jarðvinna og sprengingar

Niðurrif á bílastæðaplötu og súlum er hafið. Áætlað er að jarðvinna hefjist eftir 20. júlí en sprengingar hefjast ekki fyrr en eftir 20. ágúst. Hægt er að horfa á streymi af síðasta upplýsingafundi hér

Upplýsingafundur vegna jarðvinnu við Fannborgarreit

Kópavogsbær heldur upplýsingafund fyrir íbúa og hagaðila vegna fyrirhugaðrar jarðvinnu á Fannborgarreit. Fundurinn fer fram þriðjudaginn 30. júní 2026 kl. 16:00 í Barnaskóla Kársness.

Plötur undir Fannborg 4 og 6

Framkvæmdir hefjast á neðri palli við Fannborg þar sem girðingar verða færðar og plötur, súlur og efni undir Fannborg 4 og 6 fjarlægt.