Updates
Lok niðurrifs á Fannborgarreit

Niðurrif á Fannborgarreit er á lokastigi. Vegna ófyrirséðra bilana hjá verktaka tókst ekki að ljúka fleygun botnplötu innan áætlaðs tíma. Fleygun mun því halda áfram fram að helgi og mögulega einnig mánudaginn 31. ágúst.
Dagana 1.–4. september verður unnið að frágangi svæðisins. Efni verður flokkað, steypa mulin og efni flutt af svæðinu.