Framvinda

Nýjustu tilkynningar og gögn

Traðarreitur Vestur

Verktaki mun í vikunni byrja að hreinsa innan úr húsum það sem er heimilt án byggingarleyfis. Um er að ræða innréttingar, létta veggi og gólfefni.

Sérsveit lögreglunnar heldur æfingu

Sérsveit lögreglunnar mun halda æfingu í húsum við Vallartröð 1, 3 og 7 í fyrramálið, miðvikudag 20. maí.

Staða framkvæmda á Fannborgarreit og Traðarreit vestur í miðbæ Kópavogs

Uppbygging nýs miðbæjar í Kópavogi fer fram á tveimur reitum: Fannborgarreit og Traðarreit vestur.

Gróðurflutningar úr Traðarreit vestri

Um þessar mundir er garðyrkjudeild Kópavogsbæjar að ljúka við að flytja gróður úr Traðarreit vestri, aðallega úr Neðstutröð 4 og Vallartröð 1.

Verkinu í Fannborg miðar áfram

Vinna á lóðum Fannborgar 2, 4 og 6 heldur áfram. Verktakinn er að rífa og mylja botnplötu og sökkul á Fannborg 2. Búið er að fjarlægja nær allan úrgang frá Fannborg 6.

Framvinda framkvæmda

Verktaki er nú að flokka niðurrif á húsi við Fannborg 6.

Staða framkvæmda á Fannborgarreit

Unnið er að flokkun niðurrifs á húsum við Fannborg 4 og 6 sem þegar hafa verið rifin að mestu, auk undirbúnings tímabundinna bílastæða.

Bílastæði og niðurrif

Unnið er að frágangi bílastæða á svæðinu.

Niðurrifi á Fannborg 2 lokið og næstu skref

Niðurrifi á Fannborg 2 er lokið og unnið er að frágangi svæðis, flokkun efnis og opnun fleiri bílastæða.